Saka TikTok um brot á auglýsingareglum

Evrópusambandið telur Tiktok brjóta í bága við löggjöf sína um …
Evrópusambandið telur Tiktok brjóta í bága við löggjöf sína um stafræna miðlun. AFP/Martin Bureau

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur sakað sam­fé­lags­miðil­inn Tikt­ok um að brjóta gegn regl­um sam­bands­ins varðandi miðlun aug­lýs­inga.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins gaf í dag út yf­ir­lýs­ingu þar sem seg­ir að TikT­ok gefi ekki upp nauðsyn­leg­ar upp­lýs­ing­ar um það að hverj­um aug­lýs­ing­um er beint né hver beri ábyrgð á birt­ingu þeirra.

Þetta er í fyrsta sinn sem Evr­ópu­sam­bandið hef­ur form­lega sakað TikT­ok um það að brjóta í bága við lög­gjöf sam­bands­ins um sta­f­ræna miðlun (DSA).

Yf­ir­grips­mik­il lög­gjöf

DSA-lög­gjöf­in hef­ur verið í gildi inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins frá því á sein­asta ári. Lög­gjöf­in er yf­ir­grips­mik­il og set­ur tölu­verðar skyld­ur á tækn­irisa að sjá til þess að rétt sé staðið að miðlun aug­lýs­inga og að ólög­legt efni sé um­svifa­laust fjar­lægt.

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur tölu­vert svig­rúm til þess að beita vald­heim­ild­um á grund­velli lög­gjaf­ar­inn­ar en til að mynda geta brot gegn lög­gjöf­inni varðað sekt­um sem hljóða upp á allt að sex pró­sent af heild­ar­tekj­um fyr­ir­tækja á árs­grund­velli.

TikT­ok verður nú gefið tæki­færi til þess að fara yfir skýrslu fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar og geta í kjöl­farið komið fram and­mæl­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert