Frönsk yfirvöld hafa fjarlægt rafrænt ökklaband sem fyrrverandi forseta Frakklands, Nicolas Sarkozy, var gert að bera í kjölfar sakfellingar sinnar fyrir spillingu.
Ökklabandinu var komið á Sarkozy í febrúar en fékk hann að bera það í stað þess að afplána eins árs fangelsisdóm.
Aldurs síns vegna gat Sarkozy, sem er 70 ára gamall, sótt um reynslulausn fyrr en ella. Reynslulausnin var svo veitt í gær eftir að fyrrum forsetinn hafði afplánað rétt rúma þrjá mánuði.
Þrátt fyrir að Sarkozy þurfi ekki lengur að bera ökklabandið verður það ekki án skilyrða. Er hann t.a.m. skyldugur til að tilkynna yfirvöldum um ferðalög erlendis, hlíta boðum yfirvalda og taka á móti heimsóknum skilorðsfulltrúa.
Hæstiréttur Frakklands fyrirskipaði Sarkozy til að bera ökklabandið í desember 2024 eftir að hafa fundið hann sekan um að reyna að hafa áhrif á dómara í máli gegn honum árið 2014.
Hefur forsetinn, sem hefur verið umlukinn lagalegum vandamálum síðan hann lét af embætti forseta árið 2012, alltaf haldið fram sakleysi sínu og hyggst fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.
Franskur dómstóll mun svo kveða upp dóm í september í öðru máli gegn Sarkozy, en þar er honum gefið að sök að hafa þegið ólögleg fjárframlög sem sett voru í kosningasjóði frá fyrrum einræðisherra Líbíu, Moammar Gaddafí. Formleg rannsókn á því máli hófst árið 2013.