Tjón á átta byggingum eftir sprengingu

Átta byggingar urðu fyrir tjóni í sprengingunni í gærkvöldi.
Átta byggingar urðu fyrir tjóni í sprengingunni í gærkvöldi. Skjáskot/Sjónvarpsfréttir SVT

Átta bygg­ing­ar eru skemmd­ar eft­ir öfl­uga spreng­ingu í íbúðahverfi í Järfälla norður af sænsku höfuðborg­inni Stokk­hólmi um klukk­an 22 að staðar­tíma í gær­kvöldi og þótti mesta mildi aðeng­inn haut lík­ams­tjón af, en fjöldi glugga brotnaði í bygg­ing­un­um sem fyr­ir tjón­inu urðu.

Daniel Wik­dahl, sem ræddi við sænska rík­is­út­varpið SVT í morg­un fyr­ir hönd lög­regl­unn­ar á Stokk­hólms­svæðinu, kvað tjónið á bygg­ing­un­um mis­mun­andi í eðli sínu og í verstu til­fell­um hefði sjálf um­gjörðin, það er ytra byrði bygg­ing­anna, gengið úr skorðum.

Treysti hann sér ekki til þess að svara því hvort óhætt væri að búa áfram í sum­um bygg­ing­anna, en lög­regl­an hafði gríðarleg­an viðbúnað í hverf­inu, sem Skäl­by heit­ir, í kjöl­far at­b­urðar­ins.

Á vett­vangi í all­an dag

„Við höf­um glögga hug­mynd um hvað það var sem sprakk, en það er ekk­ert sem við ætl­um að tjá okk­ur um,“ sagði Wik­dahl enn frem­ur.

Var lög­regla á vett­vangi í all­an dag til að tryggja ör­yggi á svæðinu auk þess að ræða við íbú­ana, en eng­inn hef­ur enn verið hand­tek­inn vegna máls­ins sem nú er rann­sakað sem skemmd­ar­verk með al­manna­hættu í för með sér auk brots á lög­um um meðferð eld- og sprengifimra efna.

SVT

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert