Bandaríkin munu líklega verða af 12,5 milljörðum bandaríkjadala, eða um 1.623 milljörðum króna, í tekjur frá erlendum ferðamönnum á þessu ári.
Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Heimssamtaka ferðaþjónustuaðila (WTTC) og Oxford Economics.
Rannsóknin leiddi í ljós að Bandaríkin væru eina landið sem ætti von á að eyðsla erlendra ferðamanna myndi minnka á milli ára.
Spáð er að tekjur frá erlendum ferðamönnum muni verða 181 milljarður dollara á árinu sem er 22,5% minna en frá því þegar best lét fyrir áratug síðan.
WTTC sagði að þetta hefði „bein áhrif á bandarískt hagkerfi í heild, með áhrifum á samfélagið, störf og fyrirtæki“.
Julia Simpson, forseti WTTC, sagði í yfirlýsingu að stuðningur stjórnvalda væri nauðsynlegur til að tryggja vöxt ferðaþjónustunnar.
Sagði hún að á meðan aðrar þjóðir byðu ferðamenn velkomna settu Bandaríkin upp „lokað“ skilti.
Á sama tíma og herferð er háð gegn ólöglegum innflytjendum með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í fararbroddi, pólitískt hlaðin ummæli eru sögð um aðrar þjóðir og tollar eru lagðir á erlendar vörur hafa verið fjölmörg dæmi um neytendur í öðrum löndum sem sniðganga bandarískar vörur og sleppa því að ferðast til Bandaríkjanna.
Simpson sagði við New York Times að sumir erlendir ferðamenn væru hræddir við að ferðast til Bandaríkjanna.
„Það eru einnig áhyggjur varðandi vegabréfsáritanir – hvort þeir séu með rétta vegabréfsáritun eða gætu óvart verið handteknir, sem hefur gert fólk nokkuð smeykt,“ var haft eftir henni.