21 sagður hafa látið lífið í ofsaveðri

Nokkrar tilkynningar hafa borist um hvirfilbyli í níu ríkjum Bandaríkjanna …
Nokkrar tilkynningar hafa borist um hvirfilbyli í níu ríkjum Bandaríkjanna síðustu daga. Mynd úr safni Wikipedia

Að minnsta kosti 21 manns hef­ur látið lífið eft­ir ofsa­veður sem gekk yfir Mis­souri og Kentucky í Banda­ríkj­un­um í gær. 

Fjór­tán manns eru sagðir hafa látið lífið í Kentucky og sjö í Mis­souri. 

Ofsa­veður hef­ur verið á svæðinu síðan á fimmtu­dag og hafa mörg heim­ili verið án raf­magns um tíma.  Veður­stofa Banda­ríkj­anna hef­ur gefið út veðurviðvar­an­ir um hvirfil­byl og ofsa­veður fyr­ir bæði Kentucky og Mis­souri. 

Spáð er áfram­hald­andi óveðri um helg­ina á svæðinu. Hvirfil­byl­ur hef­ur náð níu ríkj­um Banda­ríkj­anna frá því á fimmtu­dag en flest­ar til­kynn­ing­ar um hvirfil­byl og vind­skemmd­ir hafa verið í Ill­in­o­is. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert