Mótmælendur hliðhollir Palestínu lentu í átökum við óeirðalögregluna í Basel í Sviss í kvöld, á úrslitakvöldi Eurovision.
Mótmælendur mótmæltu þátttöku Ísraels í keppninni í miðborg Basel skömmu áður en ísraelska framlagið Yuval Raphael kom fram í St. Jakobshalle-höllinni.
Ísrael er spáð ágætu gengi í úrslitakeppninni í kvöld en veðbankar spá landinu í 7. sæti.