Sprenging við frjósemismiðstöð

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP

Einn lést er bíll sprakk við frjó­sem­ismiðstöð í Palm Springs í Kali­forn­íu í dag.

Ron deHarte borg­ar­stjóri sagði að sprengja hefði sprungið í eða við bíl­inn klukk­an 11 á staðar­tíma.

Banda­ríska al­rík­is­lög­regl­an, auk lög­reglu og slökkviliðsmanna, brugðust við spreng­ing­unni. Að sögn lög­reglu var um vilja­verk að ræða. 

Skemmd­ir urðu á miðstöðinni en að sögn Maher Abdallah, sem rek­ur stöðina, slasaðist starfs­fólkið ekki. 

„Ég hef ekki hug­mynd um hvað gerðist. Sem bet­ur fer gerðist þetta á degi þar sem við feng­um enga kúnna.“

Gavin New­som rík­is­stjóri hvatti íbúa til að halda sig frá vett­vangi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert