Innsetningarathöfn Leós XIV. fer fram í dag á Péturstorginu í Róm.
Ýmsir þjóðarleiðtogar eru mættir á Péturstorg, þar á meðal JD Vance varaforseti Bandaríkjanna, Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu og Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.
Leó XIV. er 69 ára gamall og er frá Bandaríkjunum. Hann er fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að verða páfi.