Miðað við fyrstu útgönguspár munu Pólverjar ganga aftur til kosninga 1. júní næstkomandi í seinni umferð forsetakosninga.
Rafal Trzaskowski forsetaframbjóðandi leiðir kosningarnar í fyrstu útgönguspám með 30,8% atkvæða en skammt á hæla hans er hans helsti keppinautur Karol Nawrocki með 29,1% atkvæða. Ólíklegt er að einhver hljóti meira en 50% atkvæða og fer því seinni umferð kosninganna fram.
Forseti Póllands er kosinn á fimm ára fresti og getur að hámarki setið tvö kjörtímabil. Andrzej Duda hefur verið forseti undanfarin 10 ár.
Alls eru 13 frambjóðendur til forseta en Trzaskowski er talinn sigurstranglegastur. Hann hefur undanfarin ár verið borgarstjóri Varsjár og nýtur hann stuðnings forsætisráðherra Póllands, Donalds Tusks.
Mikið er í húfi fyrir Tusk að Trzaskowski hljóti kjör en hann hefur átt í erfiðu samstarfi við Duda sem hefur ítrekað beitt neitunarvaldi yfir umbótarhugmyndum flokks Tusks. Duda hefur lýst yfir stuðningi við Nawrocki.