Tveir látnir eftir að seglskip sigldi á Brooklyn-brúna

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. APF/Stephanie Keith

Tveir lét­ust og nítj­án slösuðust þegar skipi mexí­kóska sjó­hers­ins var siglt á Brook­lyn-brúna í New York í Banda­ríkj­un­um. Slysið varð seint í gær að staðar­tíma. Skipið var á leið til Íslands. 

227 manns voru um borð í skip­inu. Af þeim nítj­án sem eru slasaðir eru tveir í lífs­hættu. 

Eric Adams, borg­ar­stjóri New York, grein­ir frá þessu á sam­fé­lags­miðlin­um X.

Tveir eru í lífshættu.
Tveir eru í lífs­hættu. AFP/​Ang­ela Weiss

Í færslu sinni á X þakk­ar Adams viðbragðsaðilum fyr­ir skjót viðbrögð. Hann seg­ir að brú­in hafi ekki orðið fyr­ir skemmd­um.

Skipið missti afl um klukk­an 20:20 að staðar­tíma og neydd­ist skip­stjór­inn til að stefna skip­inu Brook­lyn-brúnni.

Skipið lagði úr höfn frá mexí­kósku borg­inni Acapu­lco 6. apríl. Ferðinni átti að ljúka á Ísland, og var skipið á leið til Íslands þegar það lagði af stað frá New York í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka