Ríkisstjórn Spánar hefur fyrirskipað Airbnb að fjarlægja 65.000 eignir af síðu sinni en að sögn spænskra yfirvalda eru eignirnar auglýstar á ólögmætan máta.
Spænska samsteypustjórnin sem samanstendur af Sósíalistaflokknum ásamt bandalagi ýmissa flokka á vinstri vængnum hefur lengi barist gegn því að íbúðir séu auglýstar á Airbnb og hafa talið það skaða almenna húsnæðismarkaðinn í landinu.
Pablo Bustinduy, spænskur ráðherra neytendamála, hefur nú tilkynnt að Airbnb brjóti í bága við reglur um auglýsingar fasteigna og segir að hann hyggist bregðast við óreiðunni og lögleysunni sem þar fái að viðgangast, og nái þar með að efla aðgengi almennings að húsnæði.
Aðeins Frakkar taka við meiri fjölda erlendra ferðamanna en Spánverjar á ári hverju en í fyrra sóttu 94 milljónir Spánverja heim. Ferðaþjónusta er því stærsti atvinnuvegur landsins.
Ekki eru þó allir Spánverjar sáttir við þann mikla fjölda erlenda ferðamanna sem koma til landsins á ári hverju. Borgaryfirvöld í Barcelona hafa meðal annars gripið til róttækra aðgerða gegn erlendum ferðamönnum og íbúar í borginni hafa gripið til mótmæla.