Með Beyoncé og Bruce Springsteen í sigtinu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lengi eldað grátt silfur við Hollywoodstjörnur …
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lengi eldað grátt silfur við Hollywoodstjörnur á borð við Beyonce. Samsett mynd

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur nú farið fram á að Hollywood-stjörn­ur á borð við Beyoncé, Bruce Springsteen auk annarra verði rann­sakaðar fyr­ir að þiggja háar fjár­hæðir fyr­ir að lýsa yfir stuðningi við fram­boð Kamölu Harris í for­seta­kosn­ing­un­um á síðasta ári.

Þrátt fyr­ir að hafa ekki fært nein­ar sönn­ur fyr­ir máli sínu hélt Trump því m.a. fram að fram­boðsteymi Kamölu hefði greitt Beyonce 11 millj­ón­ir banda­ríkja­dala fyr­ir það eitt að láta sjá sig á kosn­inga­fundi Harris og lýsa yfir stuðningi við hana, en að sögn Hvíta húss­ins get­ur slíkt at­hæfi verið sak­næmt.

Þá á sjón­varps­stjarn­an Oprah Win­frey að hafa þegið um eina millj­ón doll­ara frá fram­boðsteymi Harris fyr­ir það að taka viðtal við hana fyr­ir kosn­ing­arn­ar, en það hef­ur Oprah varið og sagt upp­hæðina hafa farið í að dekka fram­leiðslu­kostnað á sjón­varpsþætt­in­um.

Sem kunn­ugt er var sig­ur Trumps í for­seta­kosn­ing­un­um nokkuð af­ger­andi, en lítið var um stuðnings­yf­ir­lýs­ing­ar í hans garð frá frama­fólki inn­an Hollywood, að und­an­skild­um hlaðvarps­stjórn­end­um á borð við Joe Rog­an, sem tald­ir eru hafa haft mik­il áhrif með yf­ir­lýs­ing­um sín­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert