Auðvelda synjun hælisumsókna

ESB vill herða á fólksfluttningi til sambandsríkja.
ESB vill herða á fólksfluttningi til sambandsríkja. AFP/John Thys

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins kynnti fyrr í dag áætlan­ir um að gera sam­bands­ríkj­um auðveld­ara fyr­ir að synja um­sækj­end­um um vernd og senda þá til svo­kallaðra þriðju ríkja. Áætl­un­in hef­ur þegar vakið harða gagn­rýni mann­rétt­inda­sam­taka.

Fram­kvæmda­stjórn ESB hef­ur gefið út að hún leggi til að hug­takið um svo­kölluð „ör­ugg þriðju ríki“ verði víkkað en það ger­ir aðild­ar­ríkj­um sam­bands­ins kleift að hafna hæl­is­um­sókn­um „þegar um­sækj­end­ur gætu fengið viðun­andi vernd“ ann­ars staðar.

„Ríki ESB hafa verið und­ir um­tals­verðum þrýst­ingi vegna fólks­flutn­inga und­an­far­inn ára­tug,“ sagði Magn­us Brunner, fram­kvæmda­stjóri fólks­flutn­inga hjá sam­band­inu, um til­lög­una sem hann lýsti sem „öðru tæki til að hjálpa aðild­ar­ríkj­um að vinna úr hæl­is­um­sókn­um á skil­virk­ari hátt“.

Und­ir mikl­um þrýst­ingi aðilda­ríkja

Und­an­farið hef­ur stjórn ESB verið und­ir mikl­um þrýst­ingi frá aðild­ar­ríkj­um um að herða tök­in á fólks­flutn­ing­um til Evr­ópu og gera ríkj­um auðveld­ara fyr­ir að vísa hæl­is­leit­end­um á brott.

Sam­kvæmt nú­ver­andi regl­um er hægt að synja hæl­is­leit­end­um ef talið er að þeir gætu sótt um hæli í „ör­uggu þriðja ríki“ þar sem þeir hafa „raun­veru­leg tengsl“.

Hingað til hef­ur þetta verið skilið sem ríki þar sem um­sækj­and­inn hef­ur annaðhvort búið og unnið eða á fjöl­skyldu í. Nú á að rýmka þessa skil­grein­ingu.

Sam­kvæmt til­lögu fram­kvæmda­stjórn­ar ESB munu öll þau ríki sem hæl­is­leit­andi hef­ur ferðast til á leið sinni til Evr­ópu nú falla und­ir þessa skil­grein­ingu svo lengi sem þau telj­ast ör­ugg.

Set­ur fólk í hættu

Breyt­ing­in myndi auka veru­lega þann fjölda hæl­is­leit­enda sem ríki sam­bands­ins geta synjað um vernd þar sem hátt hlut­fall hæl­is­leit­enda kem­ur við í öðrum ríkj­um á leið sinni til Evr­ópu.

Til dæm­is komu marg­ir af þeim 20.000 hæl­is­leit­end­um sem komu til Evr­ópu sjó­leiðis frá Norður-Afr­íku í apríl alla leið frá Bangla­dess, Erít­r­eu, Pak­ist­an og Sýr­landi og hafa þá vænt­an­lega komið við í öðrum ríkj­um Afr­íku á leiðinni.

Til­laga fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar um rýmk­un hug­taks­ins þarf nú samþykki Evr­ópuþings­ins og aðild­ar­ríkja til að verða að lög­um en hún hef­ur nú þegar vakið harða gagn­rýni.

Sarah Chand­er, fram­kvæmda­stjóri mann­rétt­inda­sam­tak­anna Equin­ox Initiati­ve for Racial Justice, hef­ur meðal ann­ars sagt að ESB sé „að af­baka hug­takið um ör­yggi til að ná sín­um eig­in kúg­andi mark­miðum“.

„ESB er að ryðja braut­ina til að flytja og vísa inn­flytj­end­um nán­ast hvert sem er, sem set­ur fólk í hættu,“ sagði hún.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert