Þrír særðir eftir stunguárás í skóla í Finnlandi

Finnska lögreglan.
Finnska lögreglan. AFP

Þrír nem­end­ur voru stungn­ir í grunn­skóla í Pirkka­la í suðvest­ur­hluta Finn­lands í morg­un. Hinn grunaði, nem­andi við skól­ann, var hand­tek­inn skömmu síðar, að sögn lög­reglu.

Hinir særðu hlutu ekki lífs­hættu­lega áverka að sögn Ninu Ju­urak­ko, tals­manns lög­regl­unn­ar, í sam­tali við AFP-frétta­veit­una og bæt­ir því við að lög­regl­an sé að rann­saka frétt­ir fjöl­miðla um að nem­andinn hafi beint árás­un­um að stúlk­um í skól­an­um.

Talið er að í skól­an­um séu um 1.250 nem­end­ur, allt frá leik­skóla upp í ní­unda bekk. Þar starfa um 150 kenn­ar­ar og annað starfs­fólk. Ekki er vitað um ald­ur þeirra sem særðust í árás­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert