Kenía hefur viðurkennt hlutdeild í mannráni hins úganska Kizza Besigye. Mannránið var framið í Naíróbí, höfuðborg Kenía, í nóvember.
Nú fara fram réttarhöld yfir Besigye þar sem hann er sakaður um landráð.
Besigye var lengi læknir forseta Úganda, Yoweri Museveni, sem hefur stjórnað landinu í hartnær 40 ár. Besigye snerist gegn honum og bauð sig sjálfur fram til embættis forseta.
Yfirvöld í Kenía höfðu lengi neitað að hafa tekið þátt í mannráninu, en í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi játaði utanríkisráðherra Kenía, Musalia Mudavadi, að landið hefði verið í samstarfi við úgönsk stjórnvöld vegna mannránsins. „Úganda er vinveitt þjóð. Hann (Besigye) var ekki að sækja um hæli. Hann kom ekki til að segjast ætla að sækja um hæli. Hefði hann sagt það hefði hann kannski fengið aðra meðferð,“ sagði Mudavadi í sjónvarpsviðtali.
Aðgerðarsinnar segja mannránið og réttarhöldin hluta af víðfeðmu niðurrifi lýðræðis í Afríku. Réttarhöld eru einnig í gangi yfir tansaníska stjórnarandstæðingsins Tundu Lissu vegna meints landráðs. Mörg dæmi eru um að aðgerðarsinnar hafi horfið sporlaust eftir að þarlend lögregla handtók þá.