„Erum að verða vitni að hræðilegu gyðingahatri“

Lögreglumenn fyrir utan gyðingasafnið í Washington.
Lögreglumenn fyrir utan gyðingasafnið í Washington. AFP

Benja­mín Net­anja­hú hef­ur fyr­ir­skipað aukn­ar ör­ygg­is­ráðstaf­an­ir við sendi­ráð Ísra­ela um all­an heim eft­ir að tveir ísra­elsk­ir sendi­ráðsstarfs­menn voru skotn­ir til bana fyr­ir utan gyðinga­safn í Washingt­on í nótt.

„Ég hef gefið fyr­ir­mæli um aukna ör­ygg­is­gæslu við sendi­ráð Ísra­els um heim all­an og að auka vernd fyr­ir full­trúa rík­is­ins. Við erum að verða vitni að hræðilegu gyðinga­h­atri,“ sagði Net­anja­hú við frétta­menn.

Mynd­band, sem hef­ur verið dreift á sam­fé­lags­miðlum, sýn­ir ung­an skeggjaðan mann í jakka og hvítri skyrtu hrópa „frjáls, frjáls Palestína“ þegar hann var leidd­ur í burtu af lög­reglu en þrítug­ur karl­maður frá Chicago var hand­tek­inn grunaður um morðin.

Fórn­ar­lömb­in voru par sem hugðist trú­lofa sig á næst­unni, að sögn Yechiel Leiter, sendi­herra Ísra­els í Banda­ríkj­un­um.

„Þetta er fyr­ir­lit­legt hat­ur­s­verk, gyðinga­hat­ur, sem hef­ur kostað tvo unga starfs­menn ísra­elska sendi­ráðsins lífið,“ sagði Isaac Herzog, for­seti Ísra­els, og bætti við:

„Banda­rík­in og Ísra­el munu standa sam­einuð í vörn þjóðar okk­ar og sam­eig­in­legra gilda. Hryðju­verk og hat­ur munu ekki brjóta okk­ur niður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert