Hitamet maímánaðar slegið

Fátt er mikilvægara heldur en að drekka nóg af vatni …
Fátt er mikilvægara heldur en að drekka nóg af vatni í hitabylgjum. AFP/Joe Raedle

Hita­met maí­mánaðar á heimsvísu var slegið í dag er hiti mæld­ist 50,4°C í Abu Dhabi í Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmun­um.

Fyrra hita­met maí­mánaðar er frá ár­inu 2009 en það var einnig sett í Abu Dhabi, hiti mæld­ist þá 50,2°C.

Þess má geta að hita­met maí­mánaðar hér­lend­is var slegið fyr­ir rúmri viku síðan er hiti mæld­ist 25,8°C á Eg­ilsstaðaflug­velli.

Sam­kvæmt skýrslu Green Peace frá 2022 staf­ar Mið-Aust­ur­lönd­um mesta hætt­an af völd­um lofts­lags­breyt­inga í heim­in­um. Varað hef­ur verið við því að fæðuör­yggi gæti verið í hættu á svæðinu af þeim sök­um.

Hæsti hiti sem mælst hef­ur frá upp­hafi mæl­ing­ar mæld­ist í júlí­mánuði árið 1913, hiti mæld­ist þá 56,7°C í Dauðadaln­um í Kali­forn­íu­ríki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert