Sverð sem tilheyrði Napóleon Bónaparte Frakkakeisara var selt fyrir tæplega 4,7 milljónir evra á uppboði í París. Söluverðið er margfalt hærra en uppsett verð og nærri nýju metverði fyrir grip sem var í eigu Napóleons, að sögn uppboðshússins.
Sverðið var pantað sérstaklega til einkanota fyrir Napóleon árið 1802 og var það í eigu hans alla hans valdatíð. Var það selt á uppboði fyrir 4,66 milljónir evra eða um 675 milljónir íslenskra króna í gær.
Áætlað var að sverðið færi á 700 þúsund til eina milljón evra. Lokaverðið sló næstum uppboðsmet fyrir Napóleonsgrip sem var sett árið 2007 þegar sverð sem keisarinn notaði í orrustunni við Marengó árið 1800 seldist á 4,8 milljónir evra.
„Sverðið bætist í hóp verðmætustu Napóleonsgripa sem nokkru sinni hafa verið seldir á uppboði,“ segir uppboðshúsið Drout.
Annað eintak, eins og þetta og einnig pantað af keisaranum, er geymt í Hermitage-safninu í Pétursborg í Rússlandi. Minjagripir frá Napóleon eru reglulega til sölu á uppboðum í Frakklandi.
Tvær skammbyssur sem hann ætlaði sér að nota til að taka sitt eigið líf voru seldar í Frakklandi í júlí á seinasta ári fyrir 1,7 milljónir evra.