Tólf særðir í stunguárás á lestarstöð í Hamborg

Kona hefur verið handtekin vegna árásarinnar. Tólf eru sagðir særðir.
Kona hefur verið handtekin vegna árásarinnar. Tólf eru sagðir særðir. AFP

Tólf eru særðir eft­ir hnífa­árás á aðallest­ar­stöðinni í Ham­borg í Þýskalandi, að sögn þýskra miðla. Kona hef­ur verið hand­tek­in grunuð um verknaðinn.

Stór lög­regluaðgerð stend­ur yfir á svæðinu. Einn er sagður hafa sært fleiri með hníf á lest­ar­stöðinni um kl. 18.05 að staðar­tíma (16.05 GMT), að sögn NDR.

Af rannsókn við lestarpallinn í Hamborg. Stöðin er ein sú …
Af rann­sókn við lestar­pall­inn í Ham­borg. Stöðin er ein sú fjöl­farn­asta í Þýs­kald­andi. AFP

NDR hef­ur eft­ir slökkviliðinu á staðnum að þrír væru í lífs­hættu, þrír al­var­lega særðir, og sex lít­il­lega særðir.

Þýska lög­regl­an staðfest­ir einnig á sam­fé­lags­miðlum að „fjöldi fólks“ hafi verið særður „með hníf“ og að hinn grunaði hafi verið hand­tek­inn.

Af vettvangi við lestarstöðina í Hamborg.
Af vett­vangi við lest­ar­stöðina í Ham­borg. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert