Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir nauðsynlegt að beita Rússa frekari alþjóðlegum refsiaðgerðum til að þvinga þá til vopnahlés. Yfirlýsing hans kemur í kjölfar dróna- og eldflaugaárása Rússa á Kænugarð í nótt, þar sem 15 særðust.
„Aðeins frekari refsiaðgerðir sem beinast gegn rússneska efnahagskerfinu munu þvinga Moskvu til vopnahlés,“ skrifaði Selenskí í færslu á samfélagsmiðlinum X í morgun.
„Moskva ber ábyrgð á því að draga stríðið á langinn,“ skrifaði hann jafnframt.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur ítrekað hafnað tillögum um vopnahlé sem samninganefndir Bandaríkjanna hafa lagt fram og hefur Selenskí sakað rússneska forsetann um sýndarmennsku. Hann komi ekki að samningsborðinu með það að markmiði að semja um frið.
Sendinefndir frá Rússlandi og Úkraínu áttu beinar samningaviðræður í Istanbúl í Tyrklandi í síðustu viku, í fyrsta skipti í tæp þrjú ár. Viðræðunum lauk hins vegar án skuldbindinga um vopnahlé.