Frestar 50% tollum á ESB fram í júlí

Donald Trump á Capitol Hill í Washington á fimmtudag.
Donald Trump á Capitol Hill í Washington á fimmtudag. AFP/Alex Wroblewski

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hef­ur frestað 50% toll­um á Evr­ópu­sam­bandið fram að 9. júlí. Til­kynn­ir hann þetta eft­ir að hafa spjallað við Ursulu von der Leyen, fram­kvæmda­stjóra sam­bands­ins, í síma fyrr í kvöld.

Viðræður hafa staið yfir und­an­farn­ar vik­ur til að koma í veg fyr­ir alls­herj­ar tolla­stríð milli Banda­ríkj­anna og ESB. Samþykkt hafði verið að fresta þeim toll­um sem áður höfðu verið kynnt­ir til 8. júní.

Trump þótti viðræður ganga hægt fyr­ir sig og hótaði á föstu­dag 50% toll­um á all­ar vör­ur frá ESB sem myndu taka gildi 1. júní.

Í dag átti hann sím­tal með von der Leyen, sem sagði á sam­fé­lags­miðlum að hún hafði óskað eft­ir því við Trump að hann frestaði toll­um til 9. júlí.

Og það gerði Trump, en hann til­kynnti blaðamönn­um nú í kvöld að toll­um yrði frestað til 9. júlí, svo að frek­ari tími gæf­ist til viðræðna milli ESB og Banda­ríkj­anna. Á meðan eru þó í gildi 10% lág­mark­s­toll­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert