Að minnsta kosti 20 létu lífið, aðallega börn, og meira en 60 særðust í árás Ísraelshers á skóla, sem veitti flóttamönnum skjól, í Gasaborg í morgun.
Að sögn fréttaveitu AFP létust 20 í árásinni á Fahmi Al-Jargawi-skólann sem hýsti hundruð manna og þá hafa borist fregnir af mannfalli á öðrum stöðum á Gasasvæðinu, þar á meðal í Khan Younis og Jabalia.
Ísraelski herinn segir í yfirlýsingu að hann hafi skotið á stjórnstöð Hamas-samtakanna og segir að svæðið sé notað af hryðjuverkamönnum til að skipuleggja árásir gegn ísraelskum borgurum og ísraelskum hermönnum og að Hamas-samtökin noti íbúa Gasa sem mannlega skildi.