Hitabylgja skellur á suðurhluta Spánar og Portúgals

Hitinn gæti náð allt að 40 stigum í Sevilla í …
Hitinn gæti náð allt að 40 stigum í Sevilla í vikunni. AFP

Eft­ir nokk­urra vikna kulda- og vætutíðar á Íberíu­skag­an­um er farið að hlýna og út­lit er fyr­ir hita­bylgju þegar líður á vik­una.

Næstu daga, og þá sér­stak­lega frá og með miðviku­deg­in­um og það sem eft­ir er vik­unn­ar, mun hit­inn víða fara upp í 35-40 stig og sums staðar fyr­ir 40 stig syðst á Spáni og í Portúgal.

Mest­ur hiti verður á svæðinu milli borg­anna Cor­doba og Sevilla, þar sem spænska veður­stof­an var­ar við allt að 42 gráðum um helg­ina. Hit­inn mun ná há­marki á fimmtu­dag og föstu­dag.

Mesti hiti sem hef­ur mælst á Spáni í maí er 41 gráða í maí­mánuði 2022 en hita­metið á Spáni er 44,4 gráður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert