Sænski bílaframleiðandinn Volvo ætlar að fækka stöðugildum og segja upp 3.000 manns. Fyrirtækið greindi frá þessu í dag.
Ferlið er hluti í fyrirætlunum Volvo um að skera niður kostnað sem nemur rúmlega 18 milljörðum sænskra króna, eða sem nemur um 259 milljörðum íslenskra króna.
Rúmlega þriðjungur þess fólks sem missir vinnuna starfar í Svíþjóð. Meirihluti þeirra er skrifstofufólk og ráðgjafar sem starfa fyrir Volvo.
Forstjóri Volvo, Hakan Samuelsson, segir þetta gert vegna erfiðra markaðsaðstæðna. Fyrirtækið verði að hans sögn að aðlaga sig að breyttum heimi sem sé „staðbundnari“ en áður. Þar vísar hann til tollastríðs Bandaríkjamanna og Kína.
Volvo hefur fundið fyrir ákvörðun Trumps um tolla, en þeir nema 25% á bíla sem þeir flytja til Bandaríkjanna.
Fyrirtækið greindi frá því í apríl að það hygðist auka framleiðslu bíla í Bandaríkjunum.