Æsispennandi lokasprettur framundan

Rafal Trzaskowski, borgarstjóri Varsjár, sigraði fyrri umferðina með einu prósenti …
Rafal Trzaskowski, borgarstjóri Varsjár, sigraði fyrri umferðina með einu prósenti atkvæða. AFP

Skoðanakann­an­ir gefa til kynna að seinni um­ferð pólsku for­seta­kosn­ing­anna sem fram fer á sunnu­dag verði hníf­jöfn. Þar mæt­ir ESB-sinnaður borg­ar­stjóri Var­sjár þjóðern­is­sinnuðum sagn­fræðingi.

Fram­bjóðend­urn­ir tveir, Rafal Trza­skowski, sem nýt­ur stuðnings ríkj­andi miðju­flokka, og Karol Nawrocki, nýgræðing­ur í stjórn­mál­um sem nýt­ur stuðnings stjórn­ar­and­stöðuflokks­ins Lög og rétt­læti, eru jafn­ir með 46,3 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu spám.

Því stefn­ir í æsispenn­andi loka­sprett í kosn­inga­bar­átt­unni en keppi­naut­arn­ir hafa und­an­farna viku reynt að laða að sér kjós­end­ur úr öll­um átt­um stjórn­mál­anna.

Úrslit­in vel vöktuð

Úrslit­in verða vöktuð náið um alla Evr­ópu og víðar þar sem sig­ur Nawrocki gæti vakið efa­semd­ir um óbilandi stuðning Pól­lands við ná­granna sína í Úkraínu.

Nawrocki, sem er 42 ára, er and­víg­ur NATO-aðild Úkraínu og hef­ur talað gegn þeim kjör­um og bót­um sem millj­ón­ir úkraínskra flótta­manna í Póllandi njóta.

Sig­ur hins 53 ára gamla Trza­skowski væri aft­ur á móti mik­il lyfti­stöng fyr­ir Evr­óp­us­inna í land­inu, þar á meðal fyr­ir Don­ald Tusk for­sæt­is­ráðherra Pól­lands sem sneri aft­ur til valda í þing­kosn­ing­un­um 2023.

Und­ir­ritaði yf­ir­lýs­ingu á Youtu­be-rás

Trza­skowski vann fyrstu um­ferð kosn­ing­anna 18. maí með aðeins einu pró­senti, hann hlaut 31 pró­sent at­kvæða en Nawrocki 30 pró­sent.

Í þriðja sæti var hægrimaður­inn Slawom­ir Mentzen en hann hef­ur nú heitið Nawrocki stuðningi sín­um. Það gerði hann eft­ir að Nawrocki und­ir­ritaði í beinni út­send­ingu á YouTu­be-rás Mentzen yf­ir­lýs­ingu sem inni­held­ur meðal ann­ars lof­orð um að beita neit­un­ar­valdi gegn öll­um lög­um sem myndu hækka skatta, tak­marka tján­ing­ar­frelsi eða full­gilda hugs­an­lega NATO-aðild Úkraínu.

Fyr­ir Trza­skowski, sem er sem fyrr seg­ir yf­ir­lýst­ur Evr­óp­us­inni, hef­ur kosn­inga­bar­átt­an orðið að mik­illi jafn­væg­islist þar sem hann reyn­ir að heilla suma hægri sinnaða kjós­end­ur án þess að fæla burt þá vinstri sinnuðu.

Líkt og Nawrocki mætti hann einnig í viðtal við Mentzen á Youtu­be-rás hans. Þar samþykkti hann suma liði yf­ir­lýs­ing­ar­inn­ar sem Nawrocki und­ir­ritaði en neitaði þó að skrifa und­ir hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert