Færst hefur í vöxt að ferðaþjónustufyrirtæki í Frakklandi leyfi ferðamönnun með börn ekki að nota þjónustu sína. Sarah El-Haïry umboðsmaður barna í Frakklandi segir þróunina áhyggjuefni og hefur fundað með verkalýðsfélögum og fyrirtækjahópum til að reyna að sporna við þróuninni.
Til þessa hafa reglur um barnleysi verið að mestu bundnar við lúxusferðir eða lúxushótel á afviknum stöðum þar sem fáir gestir geta dvalið hverju sinni.
Upp á síðkastið hefur það aftur á móti færst í vöxt að hefðbundin hótel vísi fólki með börn frá fyrirtækjum sínum. Þó að þessar reglur eigi einungis við um 5% ferðaþjónustufyrirtækja í Frakklandi hefur hlutfallið vaxið hratt að sögn umboðsmannsins.
Meðal annarra hafa stjórnmálamenn veitt málinu athygli og lýst undran sinni á þróuninni. Málið var rætt á franska þinginu og viðkvæði margra að fjandsamlegt viðhorf gagnvart börnum sé áhyggjuefni.