Steve Rotheram, borgarstjóri í Liverpool, segir að enn séu fjórir alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi eftir að ökumaður ók bifreið á hóp stuðningsmanna knattspyrnuliðsins Liverpool í gær þar sem þúsundir stuðningsmanna Liverpool söfnuðust saman til að fagna Englandsmeistaratitli liðsins.
BBC greinir frá. 27 voru lagðir inn á sjúkrahús, þar af fjögur börn og er eitt þeirra alvarlega slasað. Atvikið átti sér stað á Water Street í miðborg Liverpool. Gatan er enn lokuð þar sem lögreglan heldur áfram að safna sönnunargögnum en 53 ára gamall Breti var í gær handtekinn vegna málsins.
Lögregluyfirvöld telja að um einangrað atvik hafi verið að ræða og að hann hafi einn staðið að verki.
Borgarstjórinn segir að engar nýjar upplýsingar séu komnar fram hvað varðar rannsókn málsins en verið sé að skoða hvernig bifreiðin gat farið inn á lokaða götu.
„Hugur okkar er hjá þeim slösuðu og þeim sem urðu vitni af þessu hræðilega atviki,“ segir hann.
Goðsögnin Kenny Dalglish sem bæði lék með Liverpool og stýrði liðinu segist vera í áfalli og sorgmæddur vegna atviksins. Í viðtali við BBC vísar hann í lag Liverpool „You'll Never Walk Alone“, sem hann segir aldrei hafa fundist meira viðeigandi.
Í yfirlýsingu frá Manchester United, erkióvinum Liverpool segir: „Hugur okkar er hjá Liverpool FC og Liverpool borg eftir þetta hræðilega atvik.“
„Fótboltinn stendur saman með Liverpool FC og öllum aðdáendum félagsins í kjölfar þessa skelfilega atviks sem átti sér stað í sigurhátíðinni,“ segir Gianni Infantino, forseti FIFA, í yfirlýsingu.