Gámaskipið losað eftir að hafa strandað nálægt íbúðarhúsi

Frá aðgerðunum í Þrándheimsfirði í morgun.
Frá aðgerðunum í Þrándheimsfirði í morgun. AFP

Í morg­un tókst að losa gáma­skipið sem strandaði í Þránd­heims­firði í Nor­egi á fimmtu­dags­kvöldið, aðeins nokkr­um metr­um frá heim­ili Johans Hel­berg.

Skipið er 135 metra langt og veg­ur tíu þúsund tonn og að sögn norska rík­is­út­varps­ins, NRK, voru streng­ir krækt­ir í skipið og hálf­tíma síðar losnaði það af strandstað með aðstoð drátt­ar­báts.

Nokkr­ar aur­skriður hafa verið á svæðinu í kring­um skipið eft­ir að það strandaði og á laug­ar­dag­inn voru fjög­ur heim­ili rýmd en flest­um hef­ur verið leyft að snúa aft­ur til síns heima.

Úkraínsk­ur sjó­maður á þrítugs­aldri var stýri­maður þegar skipið strandaði og sagðist hann hafa sofnað, að sögn norsku lög­regl­unn­ar, sem hef­ur ákært hann fyr­ir van­rækslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert