Issa Al Hasan, sýrlenskur maður sem grunaður er um að tilheyra hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki, játaði í dag fyrir rétti að hafa drepið þrjá og sært tíu til viðbótar í hnífaárás í Solingen í Þýskalandi síðasta sumar.
Lögmaður Hasan las upp yfirlýsingu hans í upphafi réttarhalda í þýsku borginni Dusseldorf á meðan Hassan laut höfði bak við öryggisgler.
„Þrír létust af mínum höndum. Ég særði aðra alvarlega,“ sagði Hasan um árásina í yfirlýsingunni.
„Sum þeirra lifðu aðeins af fyrir tilviljun. Þau hefðu líka getað dáið,“ sagði hann. „Ég á skilið og býst við lífstíðarfangelsi.“
Hasan var hælisleitandi frá Sýrlandi sem átti að vísa úr landi er hann framdi árásina.