Hin ástralska Erin Patterson segist hafa „elskað“ fjölskyldu eiginmanns síns sem hún er nú ákærð fyrir að hafa orðið að bana í júlí árið 2023 með eitruðum sveppum í matarboði.
Skýrslutaka lögreglu af Patterson, sem tekin var upp í kjölfar atburðarins, var sýnd í dómsal í morgun. Í skýrslutökunni er hún beðin um að lýsa sambandi sínu við þau látnu.
Í skýrslutökunni segist hún hafa elskað tengdafjölskyldu sína og að samband þeirra hafi alltaf verið gott.
„Ég á enga aðra fjölskyldu, þau hafa alltaf verið góð við mig og ég hef reynt að viðhalda góðu sambandi við þau,“ segir Patterson.
Patterson var ekki í nánu sambandi við eiginmann sinn, Simon Patterson, sem neitaði boði hennar í hádegismatinn þar sem atburðurinn átti sér stað. Foreldrar hans, þau Don og Gail, létust ásamt föðursystur hans, henni Heather Wilkinson, nokkrum dögum eftir að hafa borðað matinn í boðinu.
Patterson hefur einnig verið ákærð fyrir tilraun til manndráps en eiginmaður Wilkinson lifði eitrunina af eftir langa dvöl á sjúkrahúsi.
Patterson hefur neitað allri sök í málinu og búist er við að réttarhöldin standi í viku í viðbót.