Talið er að maðurinn sem var handtekinn fyrir að keyra á stuðningsmenn knattspyrnuliðsins Liverpool í gær hafi elt sjúkrabíl inn á Water-stræti til að komast fram hjá veglokunum á götunni.
Sjúkrabíllinn var á leið á vettvang vegna manns sem var talinn vera að fá hjartaáfall. Þetta sagði Jenny Sims, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar í Liverpool, á blaðamannafundi í dag. Sky News greinir frá.
„Við gerum alltaf ráð fyrir öllum mögulegum aðstæðum. Það þýðir veglokanir til að vernda gangandi vegfarendur auk þess sem vopnuð lögregla var viðstödd allan daginn. Ekkert benti til að atvik af þessu tagi myndi eiga sér stað. Eins og við höfum áður sagt er atvikið ekki meðhöndlað sem hryðjuverk,“ sagði Sims á blaðamannafundi um málið í dag.
Maðurinn sem var handtekinn var grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna við verknaðinn. Hann er grunaður um tilraun til manndráps, hættulegan akstur og akstur undir áhrifum fíkniefna.
Á sjöunda tug særðust þegar maðurinn ók inn í mannfjöldann. Ellefu manns liggja enn á spítala en líðan þeirra er sögð stöðug.