Japanska ríkisstjórnin hefur hvatt háskóla þar í landi til að taka á móti nemendum sem vísað verður frá Harvard-háskóla þar sem Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hyggst setja lög sem meina erlendum nemendum að stunda nám við skólann.
Toshiko Abe, menntamálaráðherra Japans, sendi frá sér yfirlýsingu á þriðjudag þar sem hún biður japanska háskóla að gera það sem þeir geta til að hjálpa nemendum sem verða fyrir barðinu á þessum hindrunum bandaríska ríkisins.
„Við höfum beðið háskóla um að skoða mögulegar aðgerðir, til dæmis að taka við alþjóðlegum nemendum sem skráðir eru í bandaríska skóla svo þeir geti haldið námi sínu áfram,“ sagði Abe á blaðamannafundi.
Hún segir að Bandaríkin séu einn vinsælasti áfangastaður japanskra nemenda sem vilja stunda nám erlendis og að margir þeirra hafi lýst yfir áhyggjum sínum af málinu.
Hún bætir svo við að ráðuneyti hennar muni „gera sitt allra ýtrasta til að tryggja það að ungt fólk með metnað og hæfileika fái að halda námi sínu áfram“.