Musk ósáttur við vinnu Trumps

Elon Musk og Donald Trump í Hvíta húsinu.
Elon Musk og Donald Trump í Hvíta húsinu. AFP

Millj­arðamær­ing­ur­inn Elon Musk er gagn­rýn­inn á út­gjalda­frum­varp Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta og seg­ir frum­varpið til þess fallið að auka fjár­laga­halla banda­ríska rík­is­ins en ekki draga úr hon­um líkt og Trump hef­ur haft að mark­miði sínu. 

Tel­ur Musk frum­varpið draga und­an starfi ráðuneyt­is síns, „Depart­ment of Go­vern­ment Efficiency“ (DOGE), sem á að hreinsa til í rík­is­rekstri. 

„Ég varð fyr­ir von­brigðum með að sjá þetta gríðarlega út­gjalda­frum­varp, satt að segja, sem eyk­ur fjár­laga­hall­ann, ekki bara minnk­ar hann, og gref­ur und­an því starfi sem DOGE-teymið er að vinna,“ sagði Musk í viðtali á CBS News í gær. 

Ótt­ast að heil­brigðis­kerfið verði eyðilagt. 

Frum­varpið var samþykkt í full­trúa­deild Banda­ríkjaþings í síðustu viku og fer nú til öld­unga­deild­ar. Frum­varpið legg­ur til víðtæka skatta­lækk­un og niður­skurð í út­gjöld­um.

Ein­hverj­ir hafa áhyggj­ur af því að frum­varpið sé til þess fallið að auka þjóðarskuld­ir Banda­ríkj­anna um allt að fjóra millj­arði doll­ara á næstu tíu árum og að það muni eyðileggja heil­brigðis­kerfi Banda­ríkj­anna. 

Seg­ir frum­varpið ekki koma niður á DOGE

Þetta er í eitt af fáu skipt­um sem Musk hef­ur op­in­ber­lega gagn­rýnt stefnu Trumps en hann var einn stærsti styrkt­araðili for­setafram­boðs hans. 

Stephen Miller, aðstoðar­starfs­manna­stjóri Trumps, birti færslu á X eft­ir að viðtal­inu við Musk var sjón­varpað í gær. Sagði hann að frum­varpið myndi ekki koma niður á starf­semi DOGE held­ur þyrfti slíkt að fara í gegn­um sér­stakt frum­varp sem beind­ist gegn „skri­fræði al­rík­is­ins“.

Tók hann jafn­framt fram að frum­varpið væri ekki hluti af ár­legri fjár­laga­áætl­un.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert