Stigu frá borði og bátnum hvolfdi

Frá Kanaríeyjum.
Frá Kanaríeyjum. Ljósmynd/Colourbox

Minnst sjö drukknuðu þegar farþegar báts flótta­manna gengu frá borði við höfn La Restiga á Kana­ríeyj­um. Bát­ur­inn varð þyngri á ann­arri hliðinni er farþegar stigu frá borði, sem leiddi til þess að hon­um hvolfdi. 

Fjór­ar kon­ur hafa látið lífið, sem og þrjár stúlk­ur á aldr­in­um 5 til 16 ára. 

Björg­un­araðgerðir hafa staðið yfir og hafa björg­un­ar­menn þurft að not­ast við þyrlu og björg­un­ar­hringi til þess að koma fólki úr sjón­um, þar með talið fjölda barna sem lentu í sjón­um. 

145 til 150 manns voru um borð í bátn­um sam­kvæmt bæj­ar­stjóra El Pin­ar á Spáni. 

Björg­un­ar­skip leiddi bát­inn að höfn­inni

Áhöfn björg­un­ar­skips frá land­helg­is­gæsl­unni á Spáni kom auga á bát­inn í morg­un og fylgdi hon­um að höfn­inni þar sem hon­um hvolfdi. For­svars­menn land­helg­is­gæsl­unn­ar segja fólks­flutn­inga af þess­um toga vanda­sama, þar sem að bát­arn­ir sæeu yf­ir­full­ir og aðstæður óör­ugg­ar. Erfitt sé því að fást við aðstæður sem þess­ar.

Flótta­manna­straum­ur til Spán­ar

Á hverju ári tek­ur Spánn á móti tug­um þúsunda flótta­manna sem koma til Kana­ríeyja frá Vest­ur- Afr­íku. Straum­ur­inn er mest­ur frá Senegal, Malí og Mar­okkó. Leiðin til Evr­ópu frá Spáni er erfið, þar sem öldu­gang­ur get­ur verið mik­ill og aðstæður því erfiðar fyr­ir flótta­menn á illa bún­um bát­um.

Á síðasta ári var fjöldi flótta­manna sem kom til eyj­anna um 47.000. Það var met­fjöldi annað árið í röð. Stífari aðgerðir við flótta­manna­straumn­um á Miðjarðar­haf­inu hafa leitt til þess að fleiri flótta­menn þurfa að reyna við Atlants­hafið.

Sam­tök­in Cam­in­ando Fronteras hafa greint frá því að 10.457 flótta­menn hafi látið lífið eða horfið við flótta á báti til Spán­ar á síðasta ári. Yf­ir­völd á Kana­ríeyj­um hafa óskað eft­ir því að Evr­ópu­sam­bandið beiti sér í þess­um mál­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert