Hálf milljón manna svipt lagalegum réttindum

Dómsúrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna var óundirritaður.
Dómsúrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna var óundirritaður. AFP

Hæstirétt­ur Banda­ríkj­anna hef­ur heim­ilað rík­is­stjórn Trump að aft­ur­kalla laga­leg rétt­indi hundraða þúsunda inn­flytj­enda frá Kúbu, Haítí, Ník­aragva og Venesúela, í bili hið minnsta. 

Ákvörðunin nær til 532.000 manns sem komu til Banda­ríkj­anna und­ir svo­kallaðri skil­orðsáætl­un fyrr­um Banda­ríkja­for­set­ans Joe Biden.

Skil­orðsáætl­un­in heim­ilaði allt að 30.000 manns að koma til Banda­ríkj­anna á hverj­um mánuði í tvö ár vegna bágr­ar stöðu mann­rétt­inda í lönd­un­um fjór­um.

Hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ar mót­mæla

Tveir dóm­ara við rétt­inn, þær Ket­anji B. Jackson og Sonia Sotom­ayor, skiluðu séráliti og vöruðu við „hroðal­eg­um af­leiðing­um“ þess að snúa lífi hálfr­ar millj­ón manna á hvolf á meðan þeir bíða af­greiðslu á rétt­ar­kröf­um sín­um.

„Hæstirétt­ur hef­ur ein­fald­lega klúðrað mati sínu í dag,“ er haft eft­ir þeim. 

Dómsúrskurður hæstaréttar var óundirritaður.
Dóms­úrsk­urður hæsta­rétt­ar var óund­ir­ritaður. AFP/​Drew An­g­erer

Þær segja inn­flytj­end­urna eiga um tvennt að velja: að snúa aft­ur til heima­lands­ins og horf­ast í augu við þá hættu sem steðjar að þeim þar. 

Hinn val­kost­inn segja þær „að dvelj­ast áfram í Banda­ríkj­um og hætta á brott­vís­un,“ sem reynst hafi mörg­um erfið og harka­leg lífs­reynsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert