Rússneskur skipstjóri á sextugsaldri neitar sök um manndráp af gáleysi í tengslum við skipsskaða í Norðursjó í mars sem olli miklum eldsvoða.
Hinn 59 ára Vladimir Motin, frá Sankti Pétursborg í Rússlandi, sótti dómsalinn gegnum fjarfundarbúnað úr fangelsi í dag. Hann neitaði sök fyrir dómi þar sem hann er ákærður fyrir manndráp af vítaverðu gáleysi.
Solong, fraktskip hans sem siglir undir portúgölsku flaggi, rakst á eldsneytisflutningaskipið Stena Immaculate þann 10. mars en bæði skip stóðu í ljósum logum í rúman sólarhring í kjölfarið.
Stena Immaculate var við akkeri rúmlega 20 kílómetrum austur af höfninni í Hull í Norðaustur-Englandi þegar Solong rakst á skipið.
Einn úr áhöfn Solong, Mark Angelo Pernia, lést í árekstrinum og er Motin ákærður fyrir að bera ábyrgð á dauða hans. Auk þess var 36 mönnum bjargað af skipunum. Einnig voru uppi áhyggjur um stórfellt umhverfisslys. Plasthögl fundust síðan í sjónum dagana eftir slysið.
Málsmeðferðin heldur áfram þann 10. september en réttarhöld verða ekki fyrr en 12. janúar 2026.