Tollar Trumps fá að halda áfram í bili

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta fagnaði því í gær þegar áfrýj­un­ar­dóm­stóll frestaði tíma­bundið réttaráhrif­um af dómi sem mat tolla for­set­ans ólög­lega. Toll­ar Trumps fá því að standa í bili.

Banda­ríski alþjóðaviðskipta­dóm­stóll­inn kom á miðviku­dag í veg fyr­ir að meiri­hluti af toll­um Trumps tæki gildi.

Dóm­ar­arn­ir þrír úr­sk­urðuðu að Trump hefði farið út fyr­ir valdsvið sitt og bönnuðu flesta þá tolla sem til­kynnt­ir höfðu verið síðan hann tók við embætti í janú­ar.

Í gær, ekki einu sinni sól­ar­hring síðar, setti ann­ar dóm­stóll þá ákvörðun á pásu, þar sem réttaráhrif­um var frestað tíma­bundið.

Trump fagnaði og kallaði viðskipta­dóm­stól­inn „hræðileg­an“ fyr­ir að hafa dæmt sér í óvil og sagði að ákvörðun dóm­stóls­ins ætti að vera snúið við að öllu leyti.

Scott Bessent fjár­málaráðherra sagði að hökt væri á viðræðum Kín­verja og Banda­ríkja­manna en stakk upp á því að Trump myndi sjálf­ur eiga í viðræðum við starfs­bróður sinn, Xi Jin­ping.

Kína og Banda­rík­in höfðu ný­lega frestað gagn­kvæm­um toll­um sín­um um 90 daga eft­ir að bæði lönd­in lögðu hvort öðru tolla upp á rúm­lega hundrað pró­sent.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert