Tveir látnir og 300 handteknir eftir sigur PSG

Lögreglumenn á úrslitaleiknum.
Lögreglumenn á úrslitaleiknum. AFP

Tveir eru látn­ir og um 300 voru hand­tekn­ir í nótt af lög­regl­unni í Par­ís­ar­borg eft­ir að óeirðir brut­ust þar út í kjöl­far fyrsta sig­urs fót­boltaliðsins Par­is Saint-Germain í úr­slita­leik Meist­ara­deild­ar Evr­ópu.

Fljót­lega eft­ir að úr­slit­in urðu ljós í gær­kvöldi brut­ust út óeirðir nærri Champs Elysees-breiðstræt­inu í miðborg Par­ís­ar, en um 50.000 manns höfðu safn­ast þar sam­an í gær til að horfa á leik­inn.

Óeirðarsegg­ir skutu upp flug­eld­um og kveiktu á blys­um auk þess sem eld­ur var bor­inn að strætó­skýl­um og bíl­um í grennd­inni. Á mynd­skeiðum af óeirðunum virðist einnig sem óeirðarsegg­irn­ir hafi ætlað að brjóta sér leið inn í nær­liggj­andi versl­an­ir á borð við Chanel og Foot Locker, að því er seg­ir í frétt BBC um málið.

Lög­regla beitti bæði vatns­dæl­um og tára­gasi til þess að halda aft­ur að mót­mæl­end­um.

Bruno Retail­leau, inn­an­rík­is­ráðherra Frakk­lands, for­dæmdi óeirðirn­ar og sagði villi­menn hafa rænt hátíðar­höld­um stuðnings­manna.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert