„Við munum elta þá uppi og refsa þeim“

Macron kveðst ætla refsa óeirðarseggjunum.
Macron kveðst ætla refsa óeirðarseggjunum. Samsett mynd/AFP/Genya Savilov/Lou Benoist

Emm­anu­el Macron Frakk­lands­for­seti seg­ir óeirðirn­ar sem brut­ust út í kjöl­far sig­urs fót­boltaliðsins Par­is Saint-Germain í úr­slita­leik Meist­ara­deild­ar Evr­ópu óá­sætt­an­leg­ar. Óeirðarseggj­un­um yrði refsað fyr­ir hátt­semi sína. 

„Við mun­um elta þá uppi og refsa þeim. Við verðum mis­kunn­ar­laus,“ sagði Macron. 

Tveir létu lífið í óeirðunum og hand­tók lög­regl­an í kring­um 600 en óeirðir brut­ust út víða um Frakk­land. Hátt í 30 lög­reglu- og slökkviliðsmenn slösuðust auk þess sem einn lög­reglumaður er í dái eft­ir að hafa fengið flug­elda í augað. 

„Of­beldið og átök­in sem áttu sér stað eru óá­sætt­an­leg og hafa kostað mikið: Tveir eru látn­ir, um 30 lög­reglu- og slökkviliðsmenn slösuðust,“ sagði Macron. 

Hátt í 50 þúsund manns komu sam­an í miðborg Par­ís­ar í gær til þess að horfa á leik­inn. Eft­ir að út­slit­in urðu ljós brut­ust óeirðirn­ar út og skutu óeirðarsegg­irn­ir flug­eld­um og blys­um auk þess sem eld­ur var bor­inn að stætó­skýl­um og bíl­um í ná­grenn­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert