Mikill ösku- og gasmökkur stígur nú upp úr eldfjallinu Etnu á Ítalíu, stærsta virka eldfjalli Evrópu, en yfirvöld segja að engin hætta sé á ferð fyrir íbúa eins og er.
Myndir sýna mikið grátt ský sem steig upp úr eldfjallinu á Sikiley um klukkan 11:24 að staðartíma, samkvæmt National Institute of Geophysics and Volcanology (INGV).
„Eftirlitsmyndavélar sýndu gjóskuflóð sem varð líklega til vegna hruns frá norðurhlið suðaustur-gígsins,“ sagði INGV.
Gjóskuflóð á sér stað þegar eldfjallagrjót, aska og heitt gas streymir út frá eldfjöllum og eru þau afar hættuleg.
Renato Schifani forseti Sikileyjarhéraðs sagði að sérfræðingar hefðu fullvissað hann um að engin hætta væri á ferð fyrir íbúana þar sem flóðið væri ekki farið yfir Valle del leone, vinsælan ferðamannastað.