Kjörstaðir hafa verið opnaðir í Suður-Kóreu, en þar fara nú fram skyndiforsetakosningar, eftir að Yoon Suk-yeol var leystur frá embætti í byrjun apríl.
Stjórnlagadómstóll komst að þeirri niðurstöðu að forsetinn skyldi leystur frá embætti eftir að hann setti á herlög í landinu 3. desember. Braut það gegn stjórnarskrá landsins að mati dómstólsins.
Þegar hefur þriðjungur kosningabærra manna í landinu greitt atkvæði utankjörfundar.
Niðurstöður skoðanakannana í Suður-Kóreu gefa til kynna að Lee Jae-myung muni bera sigur úr býtum í kosningunum. Hann mælist nú með 49% fylgi, en hann býður sig fram fyrir Demókrataflokkinn.
Kim Moon-soo, sem kemur úr röðum íhaldsflokksins PPP, mælist með 35% fylgi í skoðanakönnunum. Yoon Suk-yeol var einnig í PPP.