Ákærðir fyrir víg C. Gambinos

Rapparinn C.Gambino, sem skotinn var til bana í bílageymsluhúsi í …
Rapparinn C.Gambino, sem skotinn var til bana í bílageymsluhúsi í Gautaborg í fyrra, kom jafnan fram grímuklæddur og var í hópi þekktari rappara sænskra. Skjáskot/Úr tónlistarmyndbandi

Fjór­ir menn á þrítugs­aldri hafa nú verið ákærðir í Svíþjóð fyr­ir víg rapp­ar­ans þarlenda, C.Gamb­in­os, sem skot­inn var til bana í bíla­geymslu skammt frá æsku­heim­ili sínu í Gauta­borg fyr­ir réttu ári, 4. júní í fyrra­sum­ar.

„Ódæðið var hvort tveggja mis­kunn­ar­laust og skipu­lagt,“ er haft eft­ir Shahrzad Rahimi héraðssak­sókn­ara í frétta­til­kynn­ingu embætt­is hans um ákær­una.

Rapp­ar­inn, sem réttu nafni hét Kar­ar Ali Salem Rama­dan, hafði ný­verið orðið 26 ára þegar hann mætti ör­lög­um sín­um í bíla­geymsl­unni í máli sem Rahimi sak­sókn­ari seg­ir hafa snú­ist um átök glæpa­gengja eins og svo mörg of­beld­is­mál er upp koma í Svíþjóð þessi miss­er­in – landi þar sem hálf­gerð borg­ara­styrj­öld virðist ríkja á göt­um úti er klík­ur troða illsak­ir vegna hags­muna­mála sinna.

Skipt­ar skoðanir um tengsl við klík­ur

Ákæru­atriðin gagn­vart hinum grunuðu eru mann­dráp eða sam­verknaður við mann­dráp gagn­vart tveim­ur þeirra, allt eft­ir því á hvorn telj­ist sannað að hafa myrt rapp­ar­ann, en hinir tveir eru ákærðir fyr­ir sam­verknað við mann­dráp, stór­fellda yf­ir­hylm­ingu og stór­felld skemmd­ar­verk með íkveikju, ann­ar þeirra, en hinn fyr­ir stór­fellda yf­ir­hylm­ingu og stór­felld skemmd­ar­verk með íkveikju.

Seg­ir Rahimi sak­sókn­ari það eng­um vafa und­ir­orpið að víg rapp­ar­ans í fyrra­sum­ar teng­ist ára­löng­um vær­ing­um glæpa­hópa þótt eng­inn málsaðila verði bein­lín­is tengd­ur við slíka hópa, en meðal aðal­sönn­un­ar­gagna máls­ins eru upp­tök­ur ör­ygg­is­mynda­véla í bíla­geymsl­unni sem sýna hvar bif­reið er ekið fram hjá fórn­ar­lamb­inu og það skotið fjölda skota út um op­inn glugga henn­ar.

Mia Sandros, rétt­ar­gæslu­lögmaður for­eldra C. Gamb­in­os við kom­andi rétt­ar­höld, seg­ir í sam­tali við sænska rík­is­út­varpið SVT að hún von­ist til þess að skjól­stæðinga henn­ar bíði það rétt­læt­is­mál að sjá bana­mann son­ar þeirra hljóta mak­leg mála­gjöld fyr­ir dómi.

„Að drápið teng­ist átök­um gengja er byggt á get­gát­um, son­ur um­bjóðenda minna var ekki glæpa­maður,“ seg­ir rétt­ar­gæslu­lögmaður­inn.

Síðasta lagið sem C. Gamb­ino heit­inn sendi frá sér hét raun­ar ein­mitt Sista Gang og birt­ist á streym­isveit­unni Spotify ör­skömmu fyr­ir víg hans. Hafði því verið streymt 700.000 sinn­um aðeins fá­ein­um dög­um eft­ir að hann var myrt­ur, en að jafnaði var verk­um hans streymt um millj­ón sinn­um á mánuði.

SVT

Aft­on­bla­det

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert