Júlía Navalnaja, ekkja rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, hefur stofnað sjónvarpsstöð til að berjast gegn rússneskri ritskoðun. Sjónvarpsstöðina, sem kallast Framtíð Rússlands, stofnaði hún ásamt frönsku samtökunum Blaðamenn án landamæra, RSF.
Stöðin hefur það að leiðarljósi að fjalla um málefni líðandi stundar í Rússlandi án ritskoðunar stjórnvalda.
Stöðin mun senda út efni ókeypis í gegnum gervihnattabúnað RSF en uppistaðan í efni stöðvarinnar verða myndskeið sem aðstandendur og samstarfsmenn Navalní hafa framleitt og sett á Youtube.
Fólk í Rússlandi hefur ekki greiðan aðgang að myndskeiðunum en Júlía sagði í París í dag að í Rússlandi væri „nánast full ritskoðun í gangi.“ Hún sagði að stjórnvöld í Rússlandi reyni sitt besta til að koma í veg fyrir að Rússar horfi á efnið á Youtube.
Í apríl fengu nokkrir blaðamenn þar í landi sex ára dóm fyrir að fjalla um Navalní. Hann lést í fangelsi í norðanverðu Rússlandi í fyrra.