Um fjórar milljónir manna hafa flúið Súdan síðan borgarastyrjöldin í landinu hófst í apríl árið 2023, að sögn Sameinuðu þjóðanna.
„Fjórar milljónir hafa núna flúið Súdan yfir í nágrannaríki síðan stríðið hófst, sem hefur núna staðið í á þriðja ár. Þetta eru hryllileg tímamót þegar kemur að þessari verstu fólksflóttakrísu í heiminum,” sagði Eujin Byun, talskona Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Stríðið hófst eftir að átök brutust út milli stjórnarhers Súdans og RSF-sveitanna.