Að minnsta kosti 27 eru látnir og 90 særðir eftir árás Ísraelshers á suðurhluta Gasasvæðisins í morgun.
Að sögn heilbrigðisráðuneytis Hamas-samtakanna var fólkið að bíða eftir neyðaraðstoð í suðurhluta Rafah þegar skotárásin var gerð, að því er BBC greindi frá.
Ísraelsher segist hafa hafið skothríð á „grunsamlegt fólk á leiðinni í átt að hermönnum”, að sögn AFP-fréttastofunnar.
Talsmaður varnarmálastofnunar Gasa sagði Ísraelsher hafa skotið á þúsundir almennra borgara með skriðdrekum og drónum sem höfðu safnast saman á svæðinu Al-Mawasi norðvestur af Rafah.
Á sunnudaginn greindi varnarmálastofnunin frá því að að minnsta kosti 31 hefði dáið og fjölmargir til viðbótar særst í sams konar árás Ísraelshers.