Lögreglan í Portúgal hóf í morgun nýja leit að Madeleine McCann að beiðni þýsku lögreglunnar. Búist er við að leitin standi yfir fram á föstudag.
Þýska lögreglan óskaði eftir leitinni vegna rannsóknar á Christian Brueckner sem er grunaður um að hafa myrt McCann.
McCann var í fríi með fjölskyldu sinni í Portúgal árið 2007 þegar hún hvarf sporlaust. Hún var þá aðeins þriggja ára gömul en ekki hefur spurst til hennar síðan.
Brueckner afplánar nú sjö ára fangelsisdóm í Þýskalandi fyrir að hafa nauðgað bandarískri konu árið 2005 en hann lýkur afplánun sinni í september. Fyrir fimm árum sögðust þýsk yfirvöld sannfærð um að Brueckner ætti þátt í hvarfi McCann.
Eitt af því sem þýska lögreglan styður sig við er að farsími Brueckner var staðsettur nálægt því svæði sem fjölskylda McCann gisti í Portúgal.
Samkvæmt þýskum fjölmiðlum á Brueckner langan brotaferil að baki. Hann hefur m.a. verið dæmdur fyrir kynferðisbrot, líkamsárásir og þjófnað.