Allt lítur út fyrir það að Lee Jae-Myung, frambjóðandi Demókrataflokksins, verði nýr forseti Suður-Kóreu en nú þegar nær helmingur atkvæða hefur verið talin þá hefur Lee hlotið rúm 49 prósent atkvæða.
Kim Moon-Soo, helsti keppninautur Lee, hefur hlotið tæp 43 prósent atkvæða, en Kim er frambjóðandi íhaldsflokksins PPP.
Mikill glundroði hefur skapast í stjórnmálunum í Suður-Kórea síðastliðna mánuði í kjölfar þess að fyrrverandi forseti landsins, Yoon Suk-Yeol, lýsti yfir herlögum í landinu. Hann var í kjölfarið leystur frá völdum og kallað var til skyndikosninga.
Lee hefur þegar ávarpað suður-kóresku þjóðina fyrir utan heimili sitt þar sem hann þakkar þjóðinni fyrir traustið sem hún hefur veitt honum.
„Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að uppfylla þær væntingar sem að þjóðin hefur til mín. Ég mun ekki láta ykkur verða fyrir vonbrigðum,“ sagði Lee við stuðningsmenn sína fyrir utan heimili sitt nú þegar tölurnar voru birtar.