Elon Musk hjólaði fyrr í dag í efnahagsfrumvarp Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Yfirlýsingin vekur sérstaka athygli þar sem Musk hefur ekki áður gagnrýnt áform forsetans svona harðlega á þessu kjörtímabili.
Musk lýsti frumvarpinu sem „viðbjóðslegri andstyggð” og sagði mönnum sem kusu með því að skammast sín, en repúblikanar í fulltrúadeildinni samþykktu frumvarpið í síðustu viku.
Það á þó eftir að fá samþykkt í öldungadeildinni, þar sem repúblikanar eru einnig í meirihluta. Aftur á móti hafa nokkrir þingmenn repúblikana gagnrýnt frumvarpið harðlega fyrir að auka skuldir.
Talið er að skuldir Bandaríkjanna muni aukast um þrjár billjónir Bandaríkjadala á næsta áratugi verði frumvarpið að lögum. Er það þrátt fyrir niðurskurð á ákveðnum sviðum, en skuldasöfnun Bandaríkjanna hefur verið gífurleg síðustu ár og áratugi.
Musk hefur farið fyrir hagræðingarteymi bandarísku ríkisstjórnarinnar (DOGE) en lauk störfum þar formlega nýlega. Ekki skal undra að hann sé ósáttur við frumvarpið í ljósi starfa sinna fyrir Trump, þar sem teyminu tókst að ná fram hagræðingu fyrir yfir hundrað milljarða bandaríkjadala samkvæmt ríkisstjórninni.
Hann segir að frumvarpið muni ýta undir ósjálfbæra skuldasöfnun Bandaríkjanna sem skattgreiðendur muni þurfa að bera hitann og þungan af.
Efnahagsfrumvarp Trumps snýr fyrst og fremst að því að hækka skuldaþak ríkisins en í frumvarpinu má einnig finna ýmsar skattalækkanir eins afnám skatta á yfirvinnu, þjórfé og ellilífeyri.
„Forsetinn vissi þegar af afstöðu Musk til frumvarpsins, þetta hefur ekki áhrif á hans afstöðu,“ sagði Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins í kjölfar yfirlýsingar Musk.