Skotin til bana fyrir að hafa neitað manni

Ofbeldi gegn konum er algengt í Pakistan, þar á meðal …
Ofbeldi gegn konum er algengt í Pakistan, þar á meðal eru árásir á konur sem hafnað hafa bónorðum ekki óalgengar. Ljósmynd/Colourbox

Sautján ára göm­ul stúlka frá Pak­ist­an var skot­in til bana eft­ir að hafa neitað manni sem hafði sam­band við hana í gegn­um sam­fé­lags­miðla.

Sana Yousaf, sem varð sautján ára í síðustu viku og er með rúm­lega millj­ón fylgj­end­ur á sam­fé­lags­miðlum, var drep­in á heim­ili sínu í höfuðborg­inni Islama­bad í gær­kvöldi.

Yousaf var með yfir 800.000 fylgj­end­ur á Tikt­ok og birti hún síðast mynd­bandið sitt á miðlin­um ör­fá­um klukku­stund­um áður en hún var myrt.

At­huga­semd­ir und­ir mynd­band­inu vekja tölu­verðan óhug en þar hafa ein­hverj­ir sagt hana sjálfa bera ábyrgð á hvernig fór fyr­ir henni, vegna viðveru henn­ar og vin­sælda á sam­fé­lags­miðlum í sam­fé­lagi þar sem kon­um er sagt hvernig þær skuli haga sér.

„Þú upp­skerð eins og þú sáir,“ skrifaði einn Tikt­ok-not­andi.

Einn í haldi lög­reglu

„Ógeðslegu um­mæl­in und­ir frétt­um af morðinu á Sönu eru ekki aðeins hat­urs­full­ir stæl­ar, þau eru hluti af hug­ar­fari sem normalíser­ar of­beldi gegn kon­um í Pak­ist­an,“ skrifaði bar­áttu­kon­an Nig­hat Dad á sam­fé­lags­miðlum.

Of­beldi gegn kon­um er al­gengt í Pak­ist­an, þar á meðal eru árás­ir gegn kon­um sem hafnað hafa bón­orðum ekki óal­geng­ar.

Lög­regla hef­ur hand­tekið 22 ára mann sem er grunaður um að hafa orðið henni að bana. Hafði hann fylgst með henni fyr­ir utan heim­ili henn­ar svo klukku­stund­um skipti.

„Þetta sner­ist um end­ur­tekn­ar neit­an­ir. Maður­inn reyndi að hafa sam­band við hana aft­ur og aft­ur,“ seg­ir Syed Ali Nas­ir Rizvi, lög­reglu­stjóri í Islama­bad.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert