Söguleg áfengislöggjöf í Svíþjóð

Sveitarfélagið Nacka norðan Stokkhólms varð fyrst til þess að bjóða …
Sveitarfélagið Nacka norðan Stokkhólms varð fyrst til þess að bjóða áfengi smáframleiðenda til sölu á sunnudaginn og ræddi sænska ríkisútvarpið SVT við starfsfólk Nacka-brugghússins sem kvaðst hafa beðið dagsins lengi. Ljósmynd/Nacka Bryggeri

„Þetta tók á taug­arn­ar, marg­ar spurn­ing­anna voru snún­ar og með mörg­um val­mögu­leik­um,“ seg­ir Mis­ur Kim, brugg­ari við Nacka-brugg­húsið í sam­nefndu sveit­ar­fé­lagi, Nacka, norðan sænsku höfuðborg­ar­inn­ar Stokk­hólms.

Prófið, sem hún grein­ir frá í sam­tali við sænska rík­is­út­varpið SVT, þurfti hún að þreyta á sunnu­dags­morg­un­inn, 1. júní, klukk­an hálf­tíu og stand­ast það ásamt sam­starfs­fólki sínu við brugg­húsið svo þar feng­ist það skref lög­lega stigið á slag­inu klukk­an tíu sem lengi verður í minn­um haft í sænskri áfeng­is- og versl­un­ar­sögu.

Þá tóku nefni­lega gildi í land­inu lög um býl­is­sölu, „lag om gårds­försäljn­ing“, sem leyfa minni áfeng­is­fram­leiðend­um, það er brugg­hús­um, vín­rækt­ar­býl­um og eim­ing­ar­hús­um, að selja viðskipta­vin­um fram­leiðslu sína alla sjö daga vik­unn­ar á milli klukk­an 10 og 20.

Skipu­lagðar fræðslu­heim­sókn­ir skil­yrði

Leyfið er vit­an­lega skil­yrðum háð. Kaup­end­ur þurfa að sýna fram á að hafa náð lögaldri til áfengis­kaupa, sem er 20 ár í Svíþjóð, auk þess að þiggja fræðslu fram­leiðand­ans um þá drykki sem hann býður til sölu og um skaðsemi áfeng­is. Má sal­an ein­ung­is eiga sér stað í tengsl­um við skipu­lagðar fræðslu­heim­sókn­ir.

Svo sem fram kem­ur hér að fram­an þurfa starfs­menn fram­leiðand­ans einnig að hafa lág­marksþekk­ingu sem þeim er ætlað að sanna með krossa­próf­inu sem Kim tal­ar um í inn­gangi frétt­ar­inn­ar og er það sama og þreyta þarf og stand­ast til þess að hljóta al­mennt vín­veit­inga­leyfi í Svíþjóð.

„Þessa höf­um við beðið lengi og nú er biðin á enda,“ seg­ir Vla­do Mar­usic, fram­kvæmda­stjóri Nacka-brugg­húss­ins, við SVT, um leið og hann af­hend­ir fyrsta sunnu­dagsviðskipta­vin­in­um kassa með úr­vali af bjór­fram­leiðslu húss­ins – viðbúnaðar- og út­flutn­ings­málaráðherr­an­um Benjam­in Dousa.

Gild­is­tím­inn sex ár til að byrja með

Lög­in reisa skýr­ar skorður til vernd­ar ein­ok­un­ar­stöðu rík­is­áfeng­is­versl­un­ar­inn­ar System­bola­get og kveða í því skyni, auk fræðslu­heim­sókn­anna fram­an­greindu, á um það há­marks­magn sem hver viðskipta­vin­ur má kaupa í hverri heim­sókn til áfeng­is­fram­leiðenda. Er þar um að ræða 0,7 lítra af sterku áfengi, þrjá lítra af víni, þrjá lítra af sterk­um bjór og þrjá lítra af öðrum teg­und­um drykkja með áfeng­is­inni­haldi.

Til að falla und­ir lög­in um býl­is­sölu þurfa fram­leiðend­urn­ir að telj­ast til minni fram­leiðenda sem lög­um sam­kvæmt fel­ur í sér að fram­leiðsla slíks fyr­ir­tæk­is má ár hvert ekki fara yfir 75.000 lítra af sterku áfengi, 400.000 lítra af öðrum áfeng­um drykkj­um sem inni­halda allt að tíu pró­sent vín­anda og 200.000 lítra af öðrum áfeng­um drykkj­um með yfir tíu pró­senta vín­andainni­hald.

Til að byrja með er gild­is­tími lag­anna nýju sex ár, en að þeim tíma liðnum munu sænsk stjórn­völd meta hvort end­ir verði bund­inn á býl­is­söl­una eða henni veitt braut­ar­gengi til fram­búðar.

SVT

Wine Table

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert